Telma Ýr
Barnaland
28.08.2006 21:25:36 / telmayr

Ég sakna Akureyrar!!!

Jæja þá er stelpan komin með nýja síðu þar sem hún ætlar að vera dugleg að blogga í vetur:) síðan er www.telmayr.bloggar.is !!! Ákvað að koma með einn saknaðarpistil í lokin með öllu því sem að ég sakna frá Akureyri...

  • Ég sakna Greifans!
  • Ég sakna stelpnanna minna í KA.. (Berglind og Jóna, það er eins gott að þið séuð ekki búnar að spilla þeim)
  • Ég sakna þess að geta farið í Hrísey hvenær sem ég vil!!!!
  • Ég sakna Hjalta!!!!
  • Og auðvitað allra hinna líka!!;)
  • Ég sakna bakaríanna!! (Tvö bestu bakarí landsins:)
  • Ég sakna KA kvenna.. Valskonur eru ekki nærrum jafn duglegar og við:)
  • Ég sakna þess að hlaupa í Kjarna!
  • Ég sakna Sjallans:)
  • Ég sakna þess að fá mér pulsu með bræddum í Ak-Inn... er reyndar búin að finna einn stað hérna í Rvk sem selur svoleiðis:)
  • Ég sakna Brynju (ísinn) :)
  • Og ótrúlegt en satt þá sakna ég eiginlega VMA svolítið....
  • Ég sakna Unnar Óskar, Arnars Pálma, Hugrúnar Lívar og Arons Inga...
  • ÉG SAKNA AKUREYRAR!!!!!!

Og þá er það komið:) Blogga næst á nýju síðunni.... en það er örugglega svolítið langt í það;)

Love love ....


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 21:27:15 / telmayr

Arsenal komnir í úrslitaleikinn.

Jæja Gótt og blessað kveldið;) Stelpan er á lífi;) Fékk hvorki fuglaflensu né annað í Tyrklandinu ;) Ég er nú ekkert búin að skrifa síðan ég fór til London.. Það var allavega geggjað gaman .. og síðan var ég í Tyrklandi núna um páskana með Fylkisstelpunum og það var ennþá skemmtilegra;) en tala nú ekkert meira um það  what happend in Tyrkland, stays in Tyrkland8)

En já annars er bara þetta að frétta set þetta bara í punkta þar sem að það er frekar mikið því það er svo langt síðan ég skrifaði seinast;)

- Ég er byrjuð að vinna á leiksóla í Hlíðunum, Sólhlíð.

- Erum ekki ennþá búin að koma okkur almennilega fyrir í íbúðinni er búið að vera svo mikið að gera.. það verður gert eftir próf;)

- Þeir sem að eru búnir að reyna að vera að ná í mig þá er ég bara ekki búin að eiga síma seinasta mánuðinn :( En er komin með núna;)

- Stelpan er að koma sér á strik í fótboltanum sem er MJÖG gaman ;) Fékk að byrja að spila úti í Tyrklandi

- Ég er ekkert alveg að ímynda mér að ég nái að útskrifast.

- Ég ætla að vera fyrir norðan í næstu viku;)

- Og viti menn ... Ég og Pálmi trúlofuðum okkur 31. mars :D

En já dettur eiginlega ekkert meira í hug .. þar sem að það er soltið langt síðan seinast :|

En langar samt að lýsa yfir fyrirlitningu minni á FH.... Ég held að álit mitt á einu liði hafi aldrei verið jafn slæmt og núna!!!!! Þar sem að fyrstu fótbolta fréttir sem maður fékk þegar maður kom heim til Íslands var að Jónas Grani fengi ekki að fara frá FH nema til liðs í fyrstudeildinni(eða neðar) og þá fyrir einhvern heilan helling af peningum .. Hvaða lið hefur efni á því..  FH er búið að slá út öllu KR "hatri" í mér ... FH er lið sem ég á ALDREI eftir að styðja..... Ef að íþróttafélög eins og FH hafa ekkert betra að gera en að eyðileggja ferilinn fyrir fólki eins og Grana þá vona ég bara að þau félög drulli í brækurnar í sumar og láti ekki sjá sig í bestu deild Íslands því þau eru íslenskum fótbolta til skammar:!::!::!: 

Jæja þá er ég aðeins búin að tjá mig um þetta;)

Elska ykkur öll .. nema kannki þessa stjórnar kalla hjá FH ;)

Love love Telma Ýr

* Ekki gefast upp á að skoða síðuna mína þó að ég bloggi ekki lengi .. þetta kemur allt á endanum ;)


» 28 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 22:11:28 / telmayr

Önnur tilraun!!!!

Jæja manni líður nú frekar skringilega þessa dagana, en lífið heldur víst áfram þótt þér verði aldrei gleymt Sesar minn.

Maður er búin að bralla lítið... við Pálmi ákváðum reyndar að skella okkur norður á föstudaginn og vorum lögð af stað tveim tímum seinna8) og komum surprise í Hrísey og allt varð vitlaust þegar við komum því að litla prinsessan fékk algjört sjokk og búin að vera með það á hreinu síðan að við séum að koma alltaf þegar hún sér ferjuna:D Við höfðum það mjög gott í Hrísey og komum svo aðeins við á Akureyri þegar við vorum að leggja í hann suður til að setja kerti á slysstað. Krakkar mínir þið verðið bara að afsaka að ég kíkti ekki í neinar heimsóknir, við vorum bara í Hrísey;)

Við Pálmi erum að fara til London um helgina að sjá Arsenal-Charlton, og verður það örugglega mjög gaman:) Ég varð samt brjáluð þegar ég frétti að viðhaldið mitt, Ljungberg, spilar ekki þennan leik.. hann er meiddur greyið, ég er samt búin að lofa honum að koma og hjúkra honum þegar Pálmi er sofnaður;)

Svo eru það aðalgellurnar á eyrinni að farað keppa í Ungfrú Norðurland á föstudaginn.. á nú ekki að þurfa að nefna þær að nafni en fyrir þá sem ekki búa fyrir norðan eru það ofurgellurnar Björk og Pála. Stelpur mínar þið eruð langflottastar í þessari keppni og þið skiptið þessu bara jafnt á milli ykkar:D Leiðinlegt að komast ekki og horfa, London beibí bíður mín8) Gangi ykkur bara geðveikt vel:!::!::!:

Þið getið kíkt á gellurnar á sjallinn.is og auðvitað verðið þið líka að kjósa:)

En ég kveð í bili.. hafið það gott öll og muniði að láta fólkið sem ykkur þykir vænt um vita af því áður en það er orðið of seint:!:

Love Telma


» 21 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 22:44:11 / telmayr

Lífið er svo skrítið!!!

Lífið getur verið svo ósanngjarnt. Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja hérna núna.

Ég vott fjölskyldu og öðrum vinum Sesars mína dýpstu samúð. Það er mikill missir að missa svona frábæran strák.

Elsku Sesar þín verður sárt saknað.

Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Víð áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund,
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingr.)

www.blog.central.is/sesar_thor

Telma Ýr


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 14:17:44 / telmayr

Hvað á maður að gera hérna..

Jæja það er kominn tími til að blogga. Þar sem að dagarnir hérna í Reykjavík hafa verið frekar daprir upp á síðkastið hef ég lítið nennt að blogga frekar en að gera e-ð annað. Eina skemmtilega sem ég geri þessa dagana er að æfa. Ég var nú ekki búin að segja ykkur það... HLUNKURINN ER FARINN AÐ ÆFA AFTUR!!!! Og það er geðveikt gaman. Er að æfa með Fylki og stelpurnar eru snild, geðveikt vel tekið á móti mér og þetta er bara loksin orðið þannig aftur að manni hlakkar bara til að far á æfingu;)

En eins og ég hef sagt áður þá er lítið sem ég nenni að gera hérna. Sem betur fer komu mamma og pabbi og Unnur til mín um þar seinustu helgi og svo aftur núna um seinustu helgi eða þá komu þau bara í Borgarfjörð og ég fór að hitta þau þar. Hjalti koma líka til mín um seinustu helgi en stoppaði frekar stutt. Hehe gat nú samt alveg notað hann í að setja saman hillu og svona e-ð ;) þessi elska.. Sakna hans svo mikið :S En já svo kom Sandra Rut líka til mín um þar seinustu helgi og það var bara nokkuð gaman.

En já svo erum við líka flutt og er það búið að taka sinn tíma. Erum flutt í Kópavoginn núna í mjög fína íbúð. Reyndar ef þið viljið koma að sjá heimsins ljótustu flísar þá er bara að koma í heimsókn;) En já það eru tvö herbergi hérna þannig að núna koma bara allir að gista hjá mér;)

En eitt enn hérna.... Mér langar nú bara að óska foreldrum mínum til hamingju með það að Unnsa punsa sé búin að vera hjá þeim í ár. Þau senst fengu hana í hendurnar 20. febrúar fyrir ári. Samt einhvernveginn finnst manni eins og maður hafi alltaf þekkt hana. ;) Hún er svo yndisleg þessi elska. Sakna hennar svooooo mikið :!::!:  Og svona svo ég verði aðeins meira væmin þá langar mig að láta hérna eitt fallegt ljóð sem er í miklu uppáhaldi hjá mömmu gömlu eftir að Unnur kom til okkar.

Once there were two women.
Who never knew each other.
One you do not rember.
The other you call Mother.

Two diffrent lives shaped
to make your one
One became your guiding star
The other became your sun.

The first gave you life
The second taught you to live in it
The first gave you the need for love
And the second was there to give it.

One gave you a nationality
The other gave you a name
One gave you the seed of talent
The other gave you an aim.

One gave you emotions
The other calmed your fears
One saw your first sweet smile
The other dried your tears.

One gave you up ....
It was all she could do
The other praid for a child
And god led her straight to YOU.

And now you ask me through your tears
The age old questions through the years.
Heredity or enviroment.....
Which are you the product of.
Neither my darling......neither
Just two kinds of love.

Allavega Til hamingju mamma og pabbi :* og auðvitað til hamingju ég líka fyrir að vera búin að eiga litla systir í rúmt ár 8) hehe ....  Love You!!!

I´m out...

Telma stolta stóra systir;)


» 18 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 21:20:40 / telmayr

Spurninga, endilega svarið;)

Sæl veriði nú... jæja hef ákveðið að skrifa ekkert af ruglinu sem er að koma fyrir mig í bili. En plís svarið þessu!

Takk takk......

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkirðu mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

P.s Það er helling af fólki að koma hérna inn og örfáir kvitta fyrir sig. Plís kvittiði, gaman að sjá hverjir eru að skoða8)


» 18 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 18:26:25 / telmayr

Hálvitinn enn og aftur að blogga!!!

Jæja þá er kominn tími til að blogg. Það er nú alveg slatti að gera hérna hjá mér, sem betur fer en svo leið og það kemur klukkutími sem maður horfir bara á sjónvarpið þá hugsa ég ekki um annað en hvað mér leiðist (alltaf jafn öfgafull;))

En ja við erum flutt í stærra herbergi, allavega hægt að kalla þetta stúdío íbúð. En svo eru foreldrar Pálma búin að kaupa íbúð sem við flytjum inn í í mars. það verður munur .. þá fer allavega vonandi betur um þig Himmi minn;)

Hehh Himmi er búinn að vera í heimsókn hérna í borginni í viku eða svo og þegar við vorum í litla herberginu þá gisti hann bara á dýnu við hliðina á rúmminu okkar ;) hehe við erum orðin vel náin eftir þessa heimsókn;)

En já ég verð nú að segja ykkur frá því hvers vegna ég irði kosinn hálviti skólans .. þar að segja ef það þekkti mig einhver;)..  Sko Hálvitinn hún Telma kom í skólann um morguninn og var orðin pínu sein eins og svo oft áður en lagði bara á þessu bévítans bílastæði þarna fyrir utan þennan helvv.... skóla og viti menn þegar Telma kom inn þá stóð á skjánum að kennarinn væri veikur þannig að ég dreif mig út aftur.. og vitit menn Bíllinn FASTUR!!! þá voru einhverjir fábjánar búnir að leggja svo nálægt að ég gat ekkert lagt á hann í hvoruga áttina og einhver svona langur amerískur bíll fyrir aftan þannig að ég gat lítið bakka. ég reynda aðeins og eftir smá stund var ég alveg orðin BRJÁLUÐ... Reyndi og reyndi að hringja í Pálma til að tuða aðeins í honum þótt hann gæti ekkert gert. En það gekk ekkert heldur þannig að ég var alveg orðin brjáluð:!::!::!: Og var Búin að hanga þarna í ca 15 mín þá kom einhver strákur að sækja e-ð dót í bílinn sinn sem var rétt hjá mínum og ég mátti gjöra svo vel að biðja hann um að bakka helvítis bílnum út fyrir mig.. Hann heldur örugglega að ég sé hálviti dauðans!!! Vona að ég rekist aldrei aftur á hann !!! Ég og þessi skóli eigum ekki vel saman.

En allaveg aþá er ég komin í svo vont skap af því að hugsa um þetta að ég er bara farin að leggja mig eða e-ð.

Sakna ykkar allra ægilega mikið þarna fyrir norðan .. og austan;)

Skrifiði endilega í gestabókina líka ;)

Love Telma


» 12 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 23:55:13 / telmayr

Jæja þá er maður komin í borgina!!

Jæja krakkar mínir þá er maður sestur að í borg óttans. Við Pálmi erum búin að ferðast mikið seinustu vikur þannig að ég hef lítið getað bloggað:D ( Maður finnur sér alltaf einhverjar afsakanir;) ) En ja við skruppum aðeins til Reykjavíkur fyrir jól og svo vorum við í Hrísey um jólin og svo fórum við aðeins á Húsavík og svo á Fáskrúðsfjörð og svo aftur til Húsavíkur(vorum þar um áramótin) og svo aftur tl Hríseyjar og erum svo komin til Reykjavíkur. Mikið ferðast þessi jólin.

En já eins og ég hef nokkuð oft sagt hérna þá erum við komin til Reykjavíkur og við búum í einhverri stúdío íbúð sem er MJÖG lítil. Það vonandi fer að reddast. Allaveg ef það á einhver fína íbúð í Reykjavíkinn og vantar leigjendur þá bara hringiði 8) En já svo var ég að koma af fyrsta leiknum hjá Pálma með Val og var það bara nokk gaman. Þeir voru að spila við Fjölni og unnu 4-1. Kallinn setti tvö mörk :!::!: :D Stolt af stráknum 8)

En já svo átti ég að byrja í skólanum í dag en ákvað að fresta því þangað til á morgun. Sko það tekur á að fara í skóla þar sem maður þekkir engann ;) hehe ég er mesti aumingi í heiminum :|

En allavega ég ætla að fara að udirbúa mig fyrir skólann á morgun ;)

Love

Telma Ýr


» 20 hafa sagt sína skoðun

19.12.2005 13:09:20 / telmayr

Jæja .. Er ekki kominn tími á eitt blogg eða svo :)

Sæl veriði og LANGT síðan seinast :$

Er að reyna að gera eina enn tilraun til að halda þessari síðu ganganda ;) Hehh það kannski segir soltið um það hversu gríðalega dugleg ég er búin að vera í þessum blogg barnsa að ég ætlaði aðeins að kíkja æa síðuna hennar Önnu Karenar um daginn og mundi ekki hvað seinni parturinn af urlinu hennar var þannig að ég fór á síðuna mína og klikkaði þar á Önnu og ekkert mál fór svo bara að lesa og sá að það stóð bara 4. nóv og e-ð og las svo bara pistilinn .... en fannst þetta e-ð soltið skrítið og kíkti betur á dagsetninguna þá var þetta 4. nóv 2004 8) hehe stelpan alveg með nýjustu síðurnar hérna inni hjá sér. Ég breyti þessu núna Anna mín ;)

Stelpan er nú að fara að flytja enn einusinni þannig að maður verður að fara að verða dugleg að blogga ;) .... Eða kannski flyt ég bara ekkert því að við erum EKKI komin með íbúð og erum að flytja eftir 17 daga. Kallmenn, aldrei hægt að láta þá sjá um neitt:!::!::!:

En já af mér er svona hitt og þetta að frétta s.s:

:!: Hætt, Byrjuð, hætt, byrjuð og er núna í fríi, í fótboltanum...

:!: Ég og Pálmi erum flutt í Hrísey.... En hann segir að við séum flutt á Húsavík. Erum bara eiginlega bæði ;)

:!: Unnur stækka og stækkar og er orðin frekar frek, mamma segir samt að það sé bara ákveðin. Ég samþykkti það ef hún færi að segja að ég væri líka bara ákveðin en ekki frek ;)

:!: Ég náði öllum prófunum, reyndar með mjög lélegar einkunnir en náði samt!!!

Úff vitiði það þetta er bara orðið allt of langt svona til að byrja með ;)

Vona samt að það skoði bara einhver þessa síðu ennþá;)

Kv. Telma Ýr


» 11 hafa sagt sína skoðun

18.04.2005 22:54:20 / telmayr

Hríseyjarferðin... skemmtilega ;)

Jæja þá er helgin búin og var hún bara nokkuð skemmtileg. Ég fór á söngvakeppnina og  til hel***** með lagið sem vann. VMA átti sko að vinna!!!!! En ja þrátt fyrir þessi mistök dómnefndar og ömurlega leiðinlega strákinn sem sat fyrir ofan okkur var bara fínt.

Svo eftir sönvakeppnina var haldið í Sjallann og það var mjög gaman. þrátt fyrir pínu raddleysi og allt of mikið af fólki!

Svo verð ég nú að segja ykkur frá frekar fyndinni Hríseyjarferð... ég og Pálmi ætluðum í grill til mömmu og pabba á sunnudaginn og vorum bara komin í ferjuna og vorum bara að bíð eftir að hún færi af stað.. en það var sko ekki hún fór aðeins frá bryggjunni og svo bara drapst á henni... og eins og Pálma er nú vel við að vera í þessari blessuðu ferju var hann mjög ánægður þegar við flutum bara þarna í hringi... Við biðum í ca. 45 mín þangað til að það koma hraðbátur og sótti okkur;) þetta var held ég í fyrsta skipti sem ég pældi almennilega í því hvað í ósköpunum foreldrar mínir væru að pæla...

Ég kveð í bili

Love Telma:*


» 103 hafa sagt sína skoðun

13.04.2005 09:28:51 / telmayr

jæja já.

Ég hef ákveðið að taka til í rassgatinu hérna og fara að gera e-ð. Óþolandi hvað fólk er latt! þá er líka eins gott að fólk fari að kvitta og svona ;) En af mér er fínt að frétta. verð samt að koma því að, að hjartað sem ég talaði um að ég væri hérna að föndra í seinasta pistli er brotið, vil þakka Hauki & Pálma fyrir það:!::!::!:

En já svo er ég búin að gera síðu handa litlu diddu;) endilega kíkiði á barnalandi. En já svo stefni ég á að blogga aftur fyrir næstu mánaðarmót;) þetta verður samt alltaf bara stutt og laggott:D En það er svo erfitt að skrifa hvað er að frétta þegar ég er ekki búin að blogga svona lengi þannig að ég geri það næst. Það er eins gott að einhver láti í sér heyra annars nenni ég þessu ekki. I´m out...

ps. Langar að þakka Himma frænda fyrir einstaka kjafta sögu um mig! Spurning hvort þú verðir frændi minn e-ð mikið lengur8)


» 102 hafa sagt sína skoðun

17.02.2005 14:57:03 / telmayr

Tími til kominn ekki satt:)

Þá er tími til kominn að fara að blogga er það ekki ;)

Mamma & pappi eru komin til til Kína. Kíkið endilega á ferða síðuna hjá hópnum inn á barnaland .. er linkur hérna niðri undir Barnaland;) hef ekkert heyrt í þeim í dag, þau eru örugglega farin að sofa núna þar sem þau eru svolítið langt á undan okku í tíma. Mamma gamla var samt búin að lofa mér að senda mér myndir frá kínamúrnum sem þau fóru á í dag ... en neinei ekki er það komið:S

Af mér er samt frekar fátt að frétta.. uss þið ættuð að vita hvað ég er orðin mikil húsmóðir;) þetta er alveg ægilegt, mín er að föndra núna.... Skilti á hurðina (svona hér búa Pálmi Rafn og Telma Ýr ;) Dugleg stelpan ;)

En já ég er í stærðfræði þannig að ég verð að fara að fylgjast með áður en að hann Matti  fer að skamma mig meira! (hann ætti að fara að taka það að sér bara að kenna!!!!) Hafið það gott krakkar mínir og fariði bara að kíkja í heimsókn;)

Bið að heilsa í bili og lofa að fara að blogga meira þar sem við erum nú komin með netið heim;)

over and out......


» 15 hafa sagt sína skoðun

01.02.2005 15:29:58 / telmayr

Kominn tími til að blogga

Úff það er búið að vera svo mikið að gera að  ég hef ekki haft tíma til að blogga. Ég og Pálmi erum búin að fá íbúð og erum að flytja í dag. Það verður vonandi kósý;) Jóa það vantar samt aðeins meira föndur dót frá þér;) Híhí :* En já flutningarbílarnir eru að koma í dag bæði að austan og úr Hrísey þannig að þessu verður bara rumpað af í kvöld... þar að segja ef Arsenal - Manchester verður ekki mjög spennandi, sem ég efast nú um þar sem að mínir menn eru náttúrlega svo ægilega góðir;)

En svo verð ég að fara að setja myndir inn. Á orðið helling af myndum sem ég hef ekki sett inn, set þær leið og ég hef tíma! Verst að ég get ekki sett myndpöndin af Skúla og Pálma vera að syngja og spila á gítar. Skúli vill halda hæfileikum sínum leyndum þangað til idolið verur næst þannig að ég verð að virða það;) En við erum samt að tala um að hann er potttéttur sigurveigari þá.. þannig að þið sem eruð að leggja stefnuna á idolið næst .. gleymiði því!!! Skúli vinnur!!

Heyri í ykkur innan tíðar!!!!


» 97 hafa sagt sína skoðun

20.01.2005 13:54:25 / telmayr

Þór KA í kvöld =)

Sælt veri fólkið! Það er svolítið langt síðan seinast :$ En það er bara mest lítið að frétta af mér. Ákvað að sleppa skólanum bara út í kæruleysi og skráði mig úr tveimur áföngum, þannig að ég er bara í 17 einingum :lol: En það er bara ágætt svona einu sinni;)

En já ég mætti ekki í skólann fyrr en 10 því að það var svo vont veður og Pálmi nennti heldur ekki að vakna:P Vorum nefninlega í Hrísey!

En Já svo fórum við að skoða íbúðir í gær og þær voru mis gáfulegar, en það var ein geðveikt fín sem við skoðuðum niður á eyri. Þannig að vonandi reddast það :| Langar svo orðið í íbúð:S 

En já svo er kannski kominn tími til að leyfa fólki að sjá litlu prinsessuna;) það eru myndir af henni á http://photos.heremy.com/telmayr11 ;)

 Svo er það STÓR leikurinn í kvöld KA - Þór ;) Það verður nú aldeilis skemmtilegt;)

Sjáum til hvernig það fer ;)

Ég er farin í bili :*

X


» 95 hafa sagt sína skoðun

12.01.2005 12:14:46 / telmayr

Jæja já

Það er bara minnst að frétta af mér þessa dagana. Er bara ekki að nenna að vera í skólanum. Fór að vísu á skíði í gær í fyrsta skipti í nokkur ár8)

En já annars þá  þið mig e-ð gott myndaforrit. vitið um einhverja extra góða síðu þá endilega látið mig vita svo ég geti sett myndirnar allar inn.

Kveð í bili.

XXX


» 84 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2